Kosningar
Einfaldari rafrænar kosningar.
Kjósendur auðkenna sig, kjósa einu sinni og þú sérð þátttöku og niðurstöður jafnóðum.
Svona virkar ferlið
Réttur til þátttöku, eitt atkvæði, sýnileg niðurstaða.
Kjósandi auðkennir sig
Rafræn skilríki opna kosninguna. Engin sérstök kosningaskírteini í pósti.
Ein kennitala, eitt atkvæði
Sami aðili getur ekki kosið aftur með sömu kennitölu.
Atkvæðið er aðskilið
Þátttaka er skráð. Valið sjálft er ekki tengt við nafn kjósanda.
Niðurstöður jafnóðum
Þú fylgist með þátttöku og samtölu án þess að telja atkvæði í höndunum.
Það sem þú færð
Fyrir aðalfundi, húsfélög og íbúakosningar.
Auðkenning
Kjósandi staðfestir sig með rafrænum skilríkjum áður en valmöguleikarnir opnast.
Réttur til þátttöku
Þú stýrir hverjum kosningin er opin. Kennitala kemur aðeins einu sinni inn.
Einfalt ferli
Kjósandi sér valmöguleikana og sendir inn. Ekkert app og engin uppsetning.
Niðurstöður
Samtala og þátttaka birtast í stjórnborðinu á meðan kosning stendur.
Notendaupplifun
Kosningin virkar í síma, með stórum valmöguleikum og skýrri staðfestingu.

Þátttaka og niðurstaða á einum stað — án þess að sjá hvað einstaklingur kaus.
Öryggi
Auðkenning og aðskilnaður atkvæðis.
- Rafræn skilríki á kjósanda
- Kennitala hashuð þar sem aðeins þarf að bera saman hvort viðkomandi hafi kosið
- Kjósandi og atkvæði í aðskildum gögnum, án tengingar
- Gögn geymd innan EES
- Vinnslusamningur með öllum áskriftum
Fyrir kosningu
Grunnur
29.900 kr./mán.
Án VSK. 50 auðkenningar eða uppflettingar innifaldar á mánuði. Hver kjósandi sem auðkennir sig telur eina. Viðbótarkaup ef fleiri kjósa.
Setja upp kosninguAlgengar spurningar
- Getur sami aðili kosið tvisvar?
- Þegar rafræn skilríki eru notuð er atkvæði bundið við kennitölu. Sama kennitala getur aðeins kosið einu sinni.
- Sérðu hvað hver og einn kaus?
- Nei. Kerfið veit hverjir hafa kosið, en atkvæðið er geymt aðskilið frá kjósandanum. Niðurstöður sýna samtölu, ekki einstaklingsatkvæði.
- Hentar þetta íbúakosningu eða aðalfundi?
- Já, þar sem kjósendur geta notað rafræn skilríki og þú vilt vita að hver kennitala komi einu sinni að borðinu. Þetta er ekki dulrituð kosning með end-to-end sannprófun.
- Hvað kostar þetta?
- Kosning hefst í Grunni, 29.900 kr. á mánuði án VSK. Hver auðkenning kjósanda telur sem ein uppfletting.
Kosning sem fólk klárar í símanum.
Auðkenning, eitt atkvæði á kennitölu og niðurstöður sem þú þarft ekki að telja upp.
