Umsóknir

Taktu við umsóknum og afgreiddu þær á einum stað.

Frá rafrænni auðkenningu og fylgigögnum yfir í afgreiðslu, staðfestingar og greiðslur.

Svona virkar ferlið

Umsóknin stoppar ekki í innhólfinu.

01

Umsækjandi auðkennir sig

Rafræn skilríki staðfesta hver sendir inn áður en umsóknin opnast.

02

Fylgigögn fylgja með

Skjöl berast með umsókninni í stað viðhengja í tölvupósti.

03

Þú afgreiðir stöðuna

Hver umsókn færist áfram: ný, í vinnslu, samþykkt eða hafnað.

04

Staðfesting fer sjálfkrafa

Umsækjandi fær póst þegar staða breytist. Enginn þarf að hringja og spyrja.

Það sem þú færð

Móttaka og afgreiðsla í sama ferli.

  • Auðkenning

    Kennitala og nafn fylgja innsendingu þegar skilríki eru notuð.

  • Fylgigögn

    Umsækjandi hleður upp skjölum sem fylgja málinu, ekki sem laus viðhengi.

  • Afgreiðslustaða

    Starfsfólk sér allar umsóknir og færir þær áfram án Excel-lista.

  • Greiðslur

    Ef umsókn krefst greiðslu er hún tekin í sama skrefi og fylgir málinu.

  • Rekjanleiki

    Stöðubreytingar og aðgerðir starfsfólks eru skráðar.

Afgreiðsla umsókna
Umsóknir í Skilagátt á spjöldum eftir stöðu afgreiðslu

Hver umsókn er mál sem þú færir áfram — ekki tölvupóstur sem týnist.

Öryggi

Umsóknargögn eiga heima á einum stað.

  • Rafræn skilríki á umsækjanda
  • Skjöl og viðkvæm gögn dulkóðuð
  • Gögn geymd innan EES
  • Vinnslusamningur með öllum áskriftum
  • Aðgangur takmarkaður við starfsfólk sem þú velur
Nánar um öryggi og hýsingu

Fyrir umsóknarferli

Rekstur

49.900 kr./mán.

Móttaka, afgreiðsluferli, sjálfvirkir póstar og greiðslur. Án VSK. Grunnur, 29.900 kr./mán., dugar ef þú þarft aðeins örugga móttöku.

Prófa Skilagátt

Algengar spurningar

Þarf umsækjandi að auðkenna sig?
Þú ræður. Þegar rafræn skilríki eru kveikt á staðfestir umsækjandi sig áður en umsóknin opnast, og kennitala og nafn fylgja innsendingunni.
Hvernig veit umsækjandi stöðuna?
Þegar afgreiðsluferli er í gangi fær umsækjandi sjálfkrafa tölvupóst þegar staða breytist, til dæmis þegar umsókn fer í vinnslu eða niðurstaða liggur fyrir.
Hvaða pakki hentar umsóknum?
Grunnur dugar til að taka örugglega við umsókn og skjölum. Afgreiðsluferli, sjálfvirkir póstar og greiðslur eru í Rekstri.
Getum við flutt gögn út?
Já. Innsendingar má sækja út, meðal annars í Excel, til að vinna áfram með þær.

Hættu að safna umsóknum í pósthólfinu.

Ein móttaka, eitt yfirlit og staða sem umsækjandinn sér sjálfur.