Persónuvernd

Persónuverndarstefna

Hvernig Skilagátt meðhöndlar persónuupplýsingar – skýrt og án lögfræðimáls þar sem hægt er.

Ábyrgðaraðili

Skilagátt ehf., Reykjavík. Fyrirspurnir um persónuvernd: personuvernd@skilagatt.is.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Um viðskiptavini: nafn, netfang, kennitala fyrirtækis og reikningsupplýsingar. Um svarendur forma: þær upplýsingar sem viðskiptavinur okkar (ábyrgðaraðili) ákveður að safna – Skilagátt er þar vinnsluaðili. Í uppljóstraragáttum söfnum við engum tæknilegum auðkennum (IP-tölu, vafraupplýsingum).

Hvar eru gögnin geymd?

Öll gögn eru geymd hjá Supabase Inc. á netþjónum í Frankfurt, Þýskalandi (AWS eu-central-1) – innan Evrópska efnahagssvæðisins. Tölvupóstur er sendur í gegnum SMTP2GO með EES-vinnslu.

Öryggi

Viðkvæm gögn eru dulkóðuð með AES-256-GCM. Aðgangur að gögnum er takmarkaður með Row Level Security á gagnagrunnsstigi. Allar tengingar eru dulkóðaðar með TLS.

Varðveisla

Gögn eru geymd á meðan áskrift er virk og í 90 daga eftir uppsögn, nema viðskiptavinur biðji um eyðingu fyrr. Viðskiptavinur getur stillt sjálfvirka eyðingu innsendinga.

Réttindi þín

Þú hefur rétt til aðgangs, leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar á vinnslu og flutnings gagna. Ef þú ert svarandi á formi viðskiptavinar okkar skaltu beina beiðni til þess aðila; við aðstoðum við afgreiðslu. Þú getur kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).

Vafrakökur

Skilagátt notar aðeins nauðsynlegar vafrakökur fyrir innskráningu og auðkenningu. Engar rakningar- eða auglýsingakökur eru notaðar.