Örugg skjalaskil

Viðkvæm gögn eiga ekki heima í tölvupósti.

Gefðu viðskiptavinum, starfsfólki og umsækjendum örugga leið til að senda skjöl og upplýsingar.

Svona virkar ferlið

Hlekkur inn. Skjal á réttan stað. Tilkynning til þín.

01

Þú sendir hlekk

Viðskiptavinurinn opnar skilaleið sem þú settir upp — ekki viðhengi á þitt netfang.

02

Sendandi auðkennir sig

Rafræn skilríki staðfesta hver hleður upp, áður en skjalið fer af stað.

03

Skjalið lendir í geymslu

Skráin fer í dulkóðaða geymslu innan EES, ekki í pósthólf.

04

Þú færð tilkynningu

Þegar skjöl berast sérðu hver sendi hvað, á einu yfirliti.

Það sem þú færð

Móttaka sem þolir launaseðla, skilríki og ársreikninga.

  • Auðkenning sendanda

    Þú þarft ekki að giska á hver sendi viðhengið.

  • Dulkóðuð skjöl

    Viðkvæm skjöl eru dulkóðuð í geymslu.

  • Aðgangsstýring

    Aðeins valið starfsfólk opnar skjölin.

  • Rekjanleiki

    Niðurhal og aðgerðir starfsfólks eru skráðar.

  • Ekkert í inboxi

    Viðkvæm fylgiskjöl þurfa ekki að liggja í tölvupóstþræði.

Móttekin skjöl
Móttekin skjöl í Skilagátt, tengd við sendanda

Skjalið er komið. Þú sérð hver sendi það — og það fór aldrei í tölvupóst.

Öryggi

Byggt fyrir gögn sem mega ekki leka.

  • Rafræn skilríki á sendanda
  • Dulkóðun viðkvæmra skjala
  • Gögn geymd innan EES
  • Vinnslusamningur með öllum áskriftum
  • Aðgerðaskrá yfir aðgang starfsfólks
Nánar um öryggi og hýsingu

Fyrir örugga móttöku

Grunnur

29.900 kr./mán.

Örugg skjalaskil, rafræn skilríki og 50 auðkenningar eða uppflettingar á mánuði. Án VSK. Ef þú þarft einnig afgreiðsluferli og greiðslur er það Rekstur.

Búa til örugga skilaleið

Algengar spurningar

Af hverju ekki bara tölvupóstur?
Viðhengi í tölvupósti liggja í innhólfum, áframsendum þráðum og afritum. Í Skilagátt fer skjalið beint í geymslu sem þú stjórnar aðgangi að.
Veit ég hver sendi skjalið?
Já, ef rafræn skilríki eru kveikt. Sendandi auðkennir sig áður en skil fara fram og nafn og kennitala fylgja sendingunni.
Hver sér skjölin?
Aðeins starfsfólk með aðgang að fyrirtækinu. Þú ræður hvort viðkomandi sé stjórnandi eða skoðandi.
Hvað kostar þetta?
Örugg móttaka skjala er í Grunni, 29.900 kr. á mánuði án VSK, með 50 auðkenningum eða uppflettingum inniföldum.

Lokaðu á viðkvæm viðhengi.

Ein skilaleið fyrir viðskiptavini, starfsfólk og umsækjendur.