Uppljóstranir

Örugg leið til að taka við uppljóstrunum.

Trúnaður fyrir þann sem tilkynnir. Skýrt ferli, aðgangsstýring og rekjanleiki fyrir þá sem afgreiða.

Svona virkar ferlið

Tilkynning inn. Mál áfram. Enginn rekinn til nafns.

01

Tilkynnandi sendir inn

Leiðin er opin án innskráningar. Ekkert er vistað sem getur bent á viðkomandi.

02

PIN heldur samtalinu gangandi

Tilkynnandi notar PIN til að sjá stöðu og svara spurningum, án þess að gefa upp nafn.

03

Aðeins réttir aðilar sjá málið

Þú velur hvaða starfsfólk hefur aðgang að innhólfinu.

04

Afgreiðslan er skráð

Staða málsins færist áfram og aðgerðir þeirra sem afgreiða eru rekjanlegar.

Það sem þú færð

Móttaka sem er aðskilin frá venjulegum umsóknum.

  • Trúnaður

    Nafnlaus innsending án IP-tölu, auðkennis eða tækjaupplýsinga.

  • Örugg skil

    Tilkynningin fer í dulkóðaða geymslu, ekki í almennt pósthólf.

  • Skýrt ferli

    Mál hefur stöðu svo það týnist ekki eftir að það berst.

  • Aðgangsstýring

    Innhólfið er ekki opið öllu starfsfólki.

  • Rekjanleiki afgreiðslu

    Þú sérð hvað var gert við málið, án þess að rekja tilkynnandann.

Innhólf tilkynninga
Innhólf uppljóstrana í Skilagátt þar sem tilkynningar eru afgreiddar

Málin birtast hjá þeim sem eiga að sjá þau — ekki hjá öllu fyrirtækinu.

Öryggi

Trúnaður tilkynnanda og yfirsýn þeirra sem afgreiða.

  • Engin IP-tala eða user-agent vistað með tilkynningu
  • PIN-númer geymt sem hash — við getum ekki lesið það
  • Dulkóðun tilkynninga
  • Gögn geymd innan EES
  • Vinnslusamningur með öllum áskriftum
Nánar um öryggi og hýsingu

Fyrir móttöku tilkynninga

Frá Grunni

29.900 kr./mán.

Örugg móttaka og aðgangsstýring. Án VSK. Ef fleiri en þrír þurfa að afgreiða, eða þú vilt sjálfvirka pósta og stærra ferli, er það Rekstur.

Ræðum ferlið

Algengar spurningar

Er tilkynnandinn nafnlaus?
Já, þegar uppljóstrunarsniðmátið er notað. Ekkert auðkenni, engin IP-tala og enginn user-agent er vistaður með tilkynningunni. Tilkynnandi fær PIN til að fylgjast með málinu og svara spurningum.
Uppfyllir þetta lög nr. 40/2020?
Lög nr. 40/2020 um vernd uppljóstrara gera kröfu um ferli hjá vinnustöðum með 50 starfsmenn eða fleiri. Skilagátt er móttaka, aðgangsstýring og afgreiðsla — ekki lögfræðileg staðfesting á því að ferlið ykkar uppfylli lögin í heild.
Hver sér tilkynningarnar?
Aðeins starfsfólk sem þú veitir aðgang. Aðrir notendur fyrirtækisins sjá þær ekki.
Hvað kostar þetta?
Móttaka tilkynninga hefst í Grunni, 29.900 kr. á mánuði án VSK. Afgreiðsluferli og fleiri notendur eru í Rekstri.

Taktu við tilkynningum án þess að brjóta trúnað.

Móttaka, aðgangur og afgreiðsla á einum stað. Lagalegt mat á ykkar ferli er ykkar.